Rótarýklúbbur Ólafsfjarðar

Rótarýklúbbur Ólafsfjarðar var stofnaður 17. apríl 1955. 
Starf hans hefur verið með miklum blóma allar götur síðan og nú um stundir eru skráðir í klúbbinn 29 félagar.

Fundir eru vikulega á Brimnes Hótel á fimmtudögim kl. 19:00.

Þar hittast félagar og snæða góðan mat fyrir formlegan fund.  

Dagskrá funda er mjög fastmótuð og hefst á erindi, sem mjög oft eru í höndum gesta sem koma gagngert til fundar  til að flytja erindin. 
Þá er fréttabréf um helstu atuburði sem hafa átt sér stað í bænum síðast liðna viku. 
Siður sem er næstum jafn gamall klúbbnum. 
Í lok fundar skiptast félagar á að fara með kvæði kvöldsins og í lokin er sunginn klúnnsöngurinn:
Eldarnir brenna, elfur tímans renna.
Ólgandi lífið hefur margt að bjóða.
Einn lyftir bjargi, annar stýrir penna,
en orðið var fyrsti hreyfimáttur þjóða.
Höfundi lífsins helgum starfið góða.

Klúbburinn hefur á undanförnum áratugum sé um skíðastökkpallinn, sem er einstkakt mannvirki í miðbæ Ólafsfjarðar, auk þess sér klúbburinn um ljósakrossa í kirkjugarðinum og fær þar tekjur í þau fjölmörgu samfeálgsverkefni sem klúbburinn styrkir á rótarýdaginn á hvert.

Klúbburinn verðu 70 ára á næsta ári og er fyrirhugað að minnast þess veglega m.a. með afmælishátíð í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði 3. mai 2025.